Móttökudeild Breiðagerðisskóla
Móttökudeild Breiðagerðisskóla er sérhæft skólaúrræði fyrir börn sem eru í leit að alþjóðlegri vernd á vegum Reykjavíkurborgar. Móttökudeildin sinnir fyrst og fremst nemendum í leit að alþjóðlegri vernd en tekur einnig á móti nemendum úr grunnskólum Reykjavíkurborgar sem af ýmsum ástæðum hafa orðið fyrir áföllum eða hafa skerta eða rofna skólagöngu að baki.
Markmið og áhersla
Markmið deildarinnar er að mæta ólíkum þörfum nemenda í öruggu og styðjandi námsumhverfi og skapa þeim góðan grunn fyrir áframhaldandi skólagöngu. Í móttökudeildinni fá nemendur tímabundinn stuðning, þar sem áhersla er á að mæta þeim þar sem þeir eru staddir, leggja grunn að íslenskukunnáttu og efla skólafærni, þar sem félagsleg færni og uppbygging sjálfstraust skapar traustan grunn fyrir farsæla skólagöngu.
Starfsfólk móttökudeildar
Við móttökudeildina starfa deildarstjóri, tveir grunnskólakennarar og einn stuðningsfulltrúi. Starfsfólk deildarinnar býr yfir mikilli reynslu þegar að kemur að því að vinna með nemendum sem koma úr flóknum aðstæðum.
- Tinna Hrafnsdóttir - deildarstjóri
- Hilal Kücükakin - Sérkennari
- Sigríður Ólöf Sigurðardóttir - Sérkennari
- Svala Jónsdóttir - Sérkennari
- Eleni Fatourou - leiðbeinandi
- Coralia Noemy Campos Solorzano - Stuðningsfulltrúi
- Idil Ahmed Shire - Stuðningsfulltrúi