Stoðþjónusta

Stefna Reykjavíkurborgar um sérkennslu og stuðning hefur skóla án aðgreiningar að megin leiðarljósi. Í því felst að skólinn veiti öllum nemendum sínum þjónustu fötluðum jafnt sem ófötluðum. Kennaranum er ætlað að aðlaga kennslu sína að nemendahópnum og þarf því að beita mismunandi kennsluaðferðum og vera með mismunandi viðfangsefni fyrir nemendur sína.
Stuðningsþjónusta í Breiðagerðisskóla
Meginmarkmið stefnu Reykjavíkurborgar er að stuðla að sem bestri þjónustu við nemendur með sérþarfir í grunnskólum borgarinnar, uppfylla markmið laga og aðalnámskrár um kennslu í samræmi við eðli og þarfir nemenda og að nýta fjármagn til sérkennslu og stuðnings sem best. Þeir sem ekki fylgja námsframvindu sem getur talist eðlileg miðað við aldur fá meiri stuðning og námsaðstoð eftir þörfum. Við úthlutun sérkennslu- og stuðningsfulltrúatímum liggja greiningar, skimanir, námsmat og beiðnir umsjónarkennara og foreldra með rökstuðningi til grundvallar.
Nánari upplýsingar um stoðþjónustu í Breiðagerðisskóla má finna á bls. 33 - 41 í Stefun og starfsáætlun Breiðagerðisskóla.
Heilsugæsla
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta.
Námsráðgjöf
Námsráðgjafi veitir nemendum persónulegan og félagslegan stuðning í námi.
Menntun fyrir alla
Í grunnskólum Reykjavíkur er sérhverju barni mætt í námi óháð atgervi þess og stöðu.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana.
Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengiliði farsældar:
Tengiliður í Breiðagerðisskóla er Ragna Lára Jakobsdóttir